Bókin Spor 3 er ætluð til kennslu átta ára barna í lífsleikni. Helstu markmið efnisins eru að efla tilfinningaþroska og samskiptahæfni nemenda. Leikir eru mikið notaðir, m.a. til að styrkja jákvæða hegðun og efla tilfinningaþroska. Tillögur um 30 kennslustundir eru í sérstökum kennsluleiðbeiningum sem fylgja efninu . Viðfangsefni kennslustunda eru mjög fjölbreytt og taka mið af kenningu um fjölgreindir.