1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Um víða veröld - Jörðin (rafbók)

Um víða veröld - Jörðin (rafbók)

Opna vöru
  • Höfundur
  • Hilmar Egill Sveinbjörnsson
  • Upplestur
  • Hildigunnur Þráinsdóttir og Stefán Hallur Stefánsson
  • Myndefni
  • Ýmsir
  • Vörunúmer
  • 40647
  • Skólastig
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2020
  • Lengd
  • 168 bls.

Kennslubók í landafræði, einkum ætluð nemendum á unglingastigi. Bókinni er skipt í átta kafla

Í hverjum kafla er að finna megintexta, rammagreinar til fróðleiks og ítargreinar um áhugaverð málefni. Í lok hvers kafla er að finna fjölbreytt verkefni. Í bókinni er fjöldi korta, skýringarmynda og ljósmynda sem útskýrir lesefnið enn frekar.

  • Fyrsti kaflinn fjallar um tilurð jarðar og jarðsöguna, gang himintungla og ferðir mannsins út í geiminn.
  • Í öðrum kafla er rætt um uppbyggingu jarðar, innri og ytri öfl sem móta landið og breyta. 
  • Í þriðja kafla er fjallað um landakort, hvernig þau nýtast manninum og nýjungar í kortagerð. 
  • Í fjórða kafla er umræða um náttúru, gróður og loftslag. 
  • Í fimmta kafla er fjallað um en höfin, hafstrauma og auðlindir hafsins. 
  • Í sjötta kafla er efni um auðlindir og orku, endurnýjanlega og óendurnýjanlega orku og mikilvægi þess að vanda umgengni við auðlindirnar. 
  • Í sjöunda kafla er gerð grein fyrir búsetu og skipulagsmálum á jörðinni. 
  • Í áttunda kafla kaflanum farið í umhverfismál og velt upp mörgum áleitnum samfélagsmálum.


Tengdar vörur