Megináherslur í skriftarnámsefni á þrepi tvö eru að nemendur beiti réttum stafdrætti og tileinki sér réttar tengingar við ritun hálftengdrar ítalíuskriftar. Í þjálfuninni er tækifærið notað til að kynna fyrir nemendum ritun algengra orða og einfaldar reglur í réttritun.
Í þessari bók, Skrift 2b, er lögð áhersla á að vinna áfram með tengingar í gegnum stafafjölskyldur en samhliða skriftarþjálfun eru stafsetningarreglur kynntar og æfðar auk þess sem nokkur verkefni hafa það að markmiði að samþætta skrift, stafsetningu og ritun.
Í Skrift 2a, er kynning á stafafjölskyldum þar sem þær eru fyrst æfðar saman án tenginga en síðan eru tengingar kynntar og æfðar.
Aftast í bókunum eru leiðbeiningar til kennara en ítarlegar kennsluleiðbeiningar eru á mms.is.
