Skrift 3 er framhald af Skrift 2b og er ætlað að auka læsileika skriftar og sjálfvirka skriftarfimi. Efnið er ætlað nemendum í 3. - 4. bekk. Tengingar út frá stafafjölskyldum eru rifjaðar upp en skriftin síðan þjálfuð með ritun samfellds texta sem tengist meðal annars réttritun og greinarmerkjasetningu. Aftast eru leiðbeiningar til kennara en ítarlegar kennsluleiðbeiningar eru á mms.is.
