28. JúN. 2016
Er læsisverkefni á réttri leið?
Þjóðarátak um læsi hófst á síðasta ári með því að öll sveitarfélög landsins skrifuðu undir yfirlýsingu um að efla læsi grunnskólabarna. Hluti af samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um þetta verkefni var að ríkið myndi leggja fjármagn til verkefnisins og var Menntamálastofnun falið að sjá um framkvæmd þess.