1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Náttúrulega 1 - Verkefnabók - lausnir

Náttúrulega 1 - Verkefnabók - lausnir

Læst svæði
  • Höfundur
  • Halldóra Lind Guðlaugsdóttir, Telma Ýr Birgisdóttir og Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir
  • Myndefni
  • Krumla
  • Vörunúmer
  • 2909
  • Skólastig
  • Miðstig
  • Útgáfuár
  • 2023
  • Lengd
  • 80

Náttúrulega 1 verkefnabók fylgir námsefninu Náttúrulega 1 sem er kjarnaefni í náttúrugreinum fyrir miðstig. Í bókaflokknum er fjallað um allar undirgreinar náttúrugreina.

Bókin samanstendur af fimm köflum sem hver fjallar um undirgrein náttúrugreina.
* Fyrsti kaflinn ber heitið Flóra og fána og fjallar um líf á jörðinni og grunneiningar lífs og flokkun þess.
* Annar kafli ber heitið Sjáðu líkamann minn. Hann fjallar um nokkur af líffærakerfum mannslíkamans, stoðkerfi, öndunarkerfi og blóðrásarkerfið og fjallar auk þess um sjónina og ljós.
* Þriðji kafli heitir Tækni og nýsköpun. Hann fjallar um þá þróun sem orðið hefur á tækni og hvernig hægt er að skapa nýja hluti og hugmyndir.
* Fjórði kafli heitir Það skiptast á skin og skúrir. Hann fjallar um lofthjúp jarðar og veðrakerfið.
* Fimmti og síðasti kafli heitir Út um mela og móa. Sá kafli fjallar um gróðurlendi á Íslandi og íslenska náttúru.

Lausnirnar eru á læstu svæði kennara.


Tengdar vörur