Náttúrulega 2 námsmatsbanki fylgir námsefninu Náttúrulega 2 sem er kjarnaefni í náttúrugreinum fyrir miðstig. Í bókaflokknum er fjallað um allar undirgreinar náttúrugreina.
Í Náttúrulega 2 er fjallað um plönturíkið og sveppi, taugakerfi, meltingakerfi og hreinsikerfi mannslíkamans. Þá er einnig farið í ýmsa krafta í náttúrunni, eðlismassa og sólkerfi, höf, vötn og nemendur kynntir fyrir efnafræði. Í námsmatsbankanum eru fjölbreyttar hugmyndir og/eða kveikjur að námsmati eða verkefnum fyrir nemendur og allar hugmyndir tengdar við hæfniviðmið og lykilhæfni aðalnámskrár.
Námsmatsbankinn er á læstu svæði kennara.