„Blessað stríðið“ er þemahefti í sögu fyrir unglingastig og er í bókaflokknum Sögugáttin.
Bókin fjallar í stórum dráttum um það hvernig íslenskt samfélag breyttist á tímum seinni heimsstyrjaldar. Íslendingar kölluðu seinni heimsstyrjöldina stundum „Blessað stríðið“ vegna þeirrar hagsældar sem varð hér á landi á meðan á því stóð og í kjölfar þess. Í þemaheftinu er einnig fjallað um þátt Íslands í stríðinu og helstu breytingar sem gengu yfir íslenskt samfélag.
Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.