Fjölskyldan á 20. öld er þemahefti í sögu ætlað fyrir mið- og unglingastig og er í bókaflokknum Sögugáttin. Bókin fjallar um líf og störf fjölskyldna á Íslandi á 20. öld. Sagt er frá fjórum íslenskum fjölskyldum sem voru uppi á ólíkum tímabilum á öldinni og fjallað um það hvernig líf og störf fjölskyldunnar hafa breyst í tímans rás.
Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.