1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Stærðfræðispæjarar 1

Stærðfræðispæjarar 1

  • Höfundur
  • Guðríður Jónsdóttir og Stefanía Guðjónsdóttir
  • Myndefni
  • Bergrún Íris Sævarsdóttir
  • Vörunúmer
  • 5642
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2019
  • Lengd
  • 48 bls.

Stærðfræðispæjarar 1 er ítarefni í stærðfræði fyrir nemendur á yngsta stigi en getur einnig nýst fyrir aðra nemendur í fjölbreyttu skólasamfélagi.

Bókin er byggð upp á 5 köflum sem sóttir eru í hæfni á ólíkum sviðum stærðfræðinnar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla; tölur, rúmfræði, reikningur, mælingar og tölfræði og hnitakerfi.

Bókinni er einnig ætlað að mæta áherslum aðalnámskrár um þjálfun almennra viðmiða um stærðfræðilega hæfni auk lykilhæfni.

Í bókinni eru kynnt til sögunnar tákn fyrir verkefnin spæjarabók og af borði á gólf. Hugmyndir að útfærslum á þeim verkefnum eru í kennsluleiðbeiningum en þær spila stórt hlutverk við notkun á námsefninu.

Hér má nálgast upptöku frá kynningu ritstjóra á Stærðfræðispæjurum sem fram fór á rafrænu opnu húsi Menntamálastofnunar þann 19. ágúst 2021.


Tengdar vörur