Rafbókarútgáfa af Stærðfræðispæjarar 1 getur nýst vel til þess að varpa upp fyrir verkefnum sem eru til umfjöllunar. Námsefnið er ítarefni í stærðfræði fyrir nemendur á yngsta stigi en getur einnig nýst fyrir aðra nemendur í fjölbreyttu skólasamfélagi.
Bókin er byggð upp á 5 köflum sem sóttir eru í hæfni á ólíkum sviðum stærðfræðinnar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla; tölur, rúmfræði, reikningur, mælingar og tölfræði og hnitakerfi.
Bókinni er einnig ætlað að mæta áherslum aðalnámskrár um þjálfun almennra viðmiða um stærðfræðilega hæfni auk lykilhæfni.
Í bókinni eru kynnt til sögunnar tákn fyrir verkefnin spæjarabók og af borði á gólf. Hugmyndir að útfærslum á þeim verkefnum eru í kennsluleiðbeiningum en þær spila stórt hlutverk við notkun á námsefninu.