1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Stærðfræðispæjarar 4

Stærðfræðispæjarar 4

  • Höfundur
  • Bryndís Stefánsdóttir og Elín Margrét Kristinsdóttir
  • Myndefni
  • Bergrún Íris Sævarsdóttir
  • Vörunúmer
  • 5039
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2023
  • Lengd
  • 80 bls.

Stærðfræðispæjarar 4 er ítarefni í stærðfræði fyrir nemendur á yngsta stigi en getur einnig nýst fyrir aðra nemendur í fjölbreyttu skólasamfélagi. Bókin er framhald fyrri bóka um Stærðfræðispæjararana þ.e. Stærðfræðispæjarar 1-3  en getur einnig staðið ein og sér.

Bókin er byggð upp á 5 köflum sem sóttir eru í hæfni á ólíkum sviðum stærðfræðinnar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla; tölur, form, reikningur, mælingar og tölfræði og hnitakerfi. Í kennsluleiðbeiningum er að finna útfærslur sem segja til um hvernig flétta má áherslum aðalnámskrár um þjálfun almennra viðmiða um stærðfræðilega hæfni auk lykilhæfni inn í kennsluna.

Í bókinni eru kynnt til sögunnar tákn fyrir verkefnin spæjarabók og af borði á gólf. Hugmyndir að útfærslum á þeim verkefnum eru í kennsluleiðbeiningum en þær spila stórt hlutverk í notkun námsefnisins. 


Tengdar vörur