Grikkland hið forna er þemahefi í sögu fyrir unglingastig grunnskóla og er í bókaflokknum Sögugáttin. Hér er saga forn Grikkja sögð en þar má segja að hafi verið vagga lýðræðis þar sem fyrstu skref mannkyns í átt að lýðræðislegu samfélagi voru stigin fyrir um 2.500 árum. Sagan af forn Grikklandi, frá Mýkenu til Alexanders mikla, er spennandi, uppfull af ævintýrum, goðsögnum og mikilvægum sögulegum atburðum.
Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem hugsuð eru sem æfing í frekari heimildavinnu.