1. Forsíða
  2. Lífið fyrr og nú á tákmáli

Lífið fyrr og nú á tákmáli

Lífið fyrr og nú hefur nú verið þýdd á táknmál. Bókin er einkum samin handa nemendum grunnskólans sem ekki ráða við námsefni jafnaldra sinna í Íslandssögu.

Markmiðið er m.a. að lesendur fáist við Íslandssögu sem hefur snertipunkta við námsefni jafnaldra þeirra í sömu grein, að þeir kannist við nokkur fyrirbæri Íslandssögunnar sem oftast ber á góma opinberlega og manna á milli og skilji að mannlíf fyrri tíma gat verið gagnólíkt mannlífi samtímans.

Texti bókarinnar er stuttur og á léttu máli. Myndefni er ríkulegt, bæði teikningar og ljósmyndir og valið með það í huga að hægt sé að lesa úr þeim það sem textinn fjallar um.

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sá um þýðinguna yfir á íslenskt táknmál. Táknari er Árný Guðmundsdóttir.

Aðrar bækur sem hafa verið þýddar á táknmál: 

Komdu og skoðaðu eldgos
Snorra saga 
Komdu og skoðaðu himingeiminn
Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti
Komdu og skoðaðu bílinn
Margt skrýtið hjá Gunnari
Draugasaga Dóra litla

skrifað 30. JAN. 2020.