Stærðfræðispæjarar 2 er ítarefni í stærðfræði fyrir nemendur á yngsta stigi en getur einnig nýst fyrir aðra nemendur í fjölbreyttu skólasamfélagi. Bókin er framhald af Stærðfræðispæjarar 1 en getur staðið ein og sér.
Bókin er byggð upp á 5 köflum sem sóttir eru í hæfni á ólíkum sviðum stærðfræðinnar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla; tölur, rúmfræði, reikningur, mælingar og tölfræði og hnitakerfi. Bókinni er einnig ætlað að mæta áherslum aðalnámskrár um þjálfun almennra viðmiða um stærðfræðilega hæfni auk lykilhæfni.
Í bókinni eru kynnt til sögunnar tákn fyrir verkefnin spæjarabók og af borði á gólf. Hugmyndir að útfærslum á þeim verkefnum eru í kennsluleiðbeiningum en þær spila stórt hlutverk við notkun á námsefninu.
Hér má nálgast upptöku frá kynningu ritstjóra á Stærðfræðispæjurum sem fram fór á rafrænu opnu húsi Menntamálastofnunar þann 19. ágúst 2021.
Hér má nálgast upptöku og glærur frá kynningu höfunda á Stærðfræðispæjurum 2 sem fram fór á rafrænu opnu húsi Menntamálastofnunar þann 19. ágúst 2020.