1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Stærðfræðispæjarar 2 (rafbók)

Stærðfræðispæjarar 2 (rafbók)

Opna vöru
  • Höfundur
  • Bryndís Stefánsdóttir og Elín Margrét Kristinsdóttir
  • Myndefni
  • Bergrún Íris Sævarsdóttir
  • Vörunúmer
  • 40632
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2020
  • Lengd
  • 56 bls.

Stærðfræðispæjarar 2 er ítarefni í stærðfræði fyrir nemendur á yngsta stigi en getur einnig nýst fyrir aðra nemendur í fjölbreyttu skólasamfélagi. Bókin er framhald af Stærðfræðispæjarar 1 en getur staðið ein og sér.

Bókin er byggð upp á 5 köflum sem sóttir eru í hæfni á ólíkum sviðum stærðfræðinnar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla; tölur, rúmfræði, reikningur, mælingar og tölfræði og hnitakerfi. Bókinni er einnig ætlað að mæta áherslum aðalnámskrár um þjálfun almennra viðmiða um stærðfræðilega hæfni auk lykilhæfni.

Í bókinni eru kynnt til sögunnar tákn fyrir verkefnin spæjarabók og af borði á gólf. Hugmyndir að útfærslum á þeim verkefnum eru í kennsluleiðbeiningum en þær spila stórt hlutverk við notkun á námsefninu.

Hér má nálgast upptöku og glærur frá kynningu höfunda á Stærðfræðispæjurum 2 sem fram fór á rafrænu opnu húsi Menntamálastofnunar þann 19. ágúst 2020. 


Tengdar vörur