1. Forsíða
  2. Árlegur dagur íslenska táknmálsins | 11. febrúar

Árlegur dagur íslenska táknmálsins | 11. febrúar

Árlegur dagur íslenska táknmálsins er 11. febrúar en íslenskt táknmál er eina hefðbundna minnihlutamálið hér á landi og er fyrsta tungumál um 200 Íslendinga. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur hvatt skóla, stofnanir og landsmenn alla til að huga að því að nota 11. febrúar og dagana þar í kring til að kynna íslenskt táknmál.

Árið 2019 hóf Menntamálastofnun að gefa út námsefni sem þýtt hefur verið á táknmál en um er að ræða samvinnuverkerfni stofnunarinnar og Samskiptamiðstöðvar heyrnalausra sem hefur séð um þýðinguna yfir á íslenskt táknmál. 

Hér má sjá efni sem út er komið en gert er ráð fyrir að tvær bækur til viðbótar verði þýddar vormisseri:

Trúarbrögðin okkar
Lífið fyrr og nú
Komdu og skoðaðu eldgos
Snorra saga 
Komdu og skoðaðu himingeiminn
Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti
Komdu og skoðaðu bílinn
Margt skrýtið hjá Gunnari
Draugasaga Dóra litla

skrifað 07. FEB. 2020.