1. Forsíða
  2. Í dag er alþjóðadagur táknmálsins

Í dag er alþjóðadagur táknmálsins

Mynd úr bókinni Margt skrýtið hjá Gunnari eftir Jón Guðmundsson. Halldór Baldursson myndskreytti.

Í dag er alþjóðadagur táknmálsins. Í tilefni dagsins verður Samskiptamiðstöð heyrnalausra og heyrnaskertra lýst upp með bláu ljósi til stuðnings íslenska táknmálinu. Fleiri byggingar, svo sem Perlan, Kópavogskirkja, RÚV og Háskóli Íslands, verða einnig lýstar upp með bláu ljósi í dag.

Íslenskt táknmál er eina hefðbundna minnihlutamálið hér á landi og er fyrsta tungumál um 200 - 300 Íslendinga. 

Árið 2017 var hafin vinna við smíði og þróun íslenskuefnis fyrir heyrnarlausa í samvinnu við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sem sá um þýðingu yfir á íslenskt táknmál.

Það var svo árið 2019 sem Menntamálastofnun hóf að gefa út námsefni sem þýtt hefur verið á táknmál. Hér má sjá efnið sem út er komið:

Trúarbrögðin okkar
Lífið fyrr og nú
Komdu og skoðaðu eldgos
Snorra saga 
Komdu og skoðaðu himingeiminn
Komdu og skoðaðu íslenska þjóðhætti
Komdu og skoðaðu bílinn
Margt skrýtið hjá Gunnari
Draugasaga Dóra litla

Annað efni tengt táknmáli:

Táknmálsleikir 1 og 2
Upp með hendur
Tákn með tali
Tákn með tali – orðabók
TMT – vefur

skrifað 23. SEP. 2022.