Samfélagið 4. febrúar 2019: Viðtal
Sigríður Lára Haraldsdóttir og Sigrún Garcia Thorarensen í fagráði eineltismála í viðtali í Samfélaginu á Rás 1.
Dreifibréf - 29. janúar 2019: Kynning á hlutverki og skipun fagráðs í grunn- og framhaldsskólum
Fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum var skipað af Lilju D. Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra 13. febrúar 2018 og hefur tekið til starfa. Fagráð eineltismála í grunnskólum var skipað árið 2012, en nýskipað fagráð tekur einnig til mála sem varða nemendur í framhaldsskólum.
Lesa meira »
Nýjar endurskoðaðar verklagsreglur fagráðs eineltismála í grunnskólum.
Vakin er athygli á að mennta- og menningarmálaráðherra Illugi Gunnarsson undirritaði þann 17. maí sl. nýjar endurskoðaðar verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í grunnskólum, sem birtar voru í Stjórnartíðindum 31. maí sl.
Lesa meira »
Dreifibréf - 23. september 2016: Gildissvið fagráðs eineltismála í grunnskólum
Fleiri aðilar í skólasamfélaginu en foreldrar og skólar geta nú óskað eftir aðkomu fagráðsins. Bæst hafa við nemendur, starfsfólk skóla, auk annarra aðila sem starfa með börnum í skóla-, frístunda- eða tómstundastarfi sem hefur stoð í grunnskólalögum.
Lesa meira »