Markmið skriftarnámsins er að nemandinn þjálfist í skrift sem nýtist honum vel í skólastarfinu og í daglegu lífi síðar meir. Í bókunum er lögð áhersla á að skrift er hreyfing og farið frá auðveldu kroti til stæðilegrar rithandar. Aðaláherslan er á skriftarhreyfinguna, litlu stafina og tengingu þeirra en tengingin eykur flæði skriftarinnar. Til að auðvelda námið er litlu stöfunum skipt í fjölskyldur. Stafir með skyld form, og því svipaðar stafaslóðir, eru í sömu fjölskyldu og hver fjölskylda á svo sinn lit.
Í Ítalíuskrift 2A eru stafirnir rifjaðir upp ásamt skriftarhreyfingunni og haldið áfram að skrifa. Ítalíuskriftin er læsileg og góð hversdagsskrift sem felur í sér marga möguleika til þróunar á fallegri rithönd.