Íris Auður Jónsdóttir er fædd 1981. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, stundaði fornám í Myndlistaskólanum á Akureyri, nam fatahönnun í Istituto Europeo Di Design, Madrid. Íris Auður lauk kennararéttindanámi fyrir grunn- og framhaldsskóla í LHI. Íris Auður starfar sem myndlistakennari í leikskólanum Grandaborg.
Verk unnin fyrir Námsgagnastofnun:
Myndskreytingar
- Komdu og skoðaðu sögu mannkyns.
- Merkir sögustaðir – Hólar.
- Merkir sögustaðir – Skálholt.
- Veggspjaldið Fæðuhringurinn.
- Að baka – lestrarbók.
- Kæra dagbók – íslenska fyrir nýbúa.
- Trúarbrögðin okkar.
- Töfrakassinn – tónlistarleikir.
- Kæra dagbók 2.
- Kæra dagbók 3
- Á ferð og flugi í umferðinni.
- Þemaheftið Árið 1918.
- Heimilisfræði f. yngsta stig
- Týsla, lífsleikni