Markmið skriftarnámsins er að nemandinn þjálfist í skrift sem nýtist honum vel í skólastarfinu og í daglegu lífi síðar meir. Í bókunum er lögð áhersla á að skrift er hreyfing og farið frá auðveldu kroti til stæðilegrar rithandar. Aðaláherslan er á skriftarhreyfinguna, litlu stafina og tengingu þeirra en tengingin eykur flæði skriftarinnar.