Í ungmennaráði Menntamálastofnunar eru unglingar á aldrinum 14-18 ára sem eru stofnuninni innan handar með ráðgjöf um málefni og verkefni stofnunarinnar sem varða börn og ungmenni. Í apríl 2016 var haldinn samráðsfundur stofnunarinnar með fulltrúum úr ýmsum starfandi ungmennaráðum og í framhaldi af þeim fundi óskaði Menntamálastofnun eftir tilnefningum frá þessum sömu aðilum í ungmennaráð stofnunarinnar. Þeirri málaleitan var mjög vel tekið og í framhaldinu var ráðið sett á fót.
Samstarfsaðilar okkar eru: Barnaheill, SAFT, Samband íslenskra sveitarfélaga (ungmennaráð sveitarfélaga), Samfés, Umboðsmaður barna, Unicef og UMFÍ.
Fulltrúar í ungmennaráði Menntamálastofnunar
Hlutverk ungmennaráðs Menntamálastofnunar
- Vera ráðgefandi fyrir Menntamálastofnun um málefni og verkefni stofnunarinnar sem snúa að börnum og ungmennum.
- Vera ráðgefandi um framtíðarsýn í þeim málum sem varða þeirra aldursflokk, eins og t.d. útgáfu námsefnis, námsmat, innritun og fl.
- Vera starfsmönnum Menntamálastofnunar innan handar í einstökum verkefnum ef tími og aðstæður ráðgjafa leyfa.
- Sitja fundi, málþing eða ráðstefnur á vegum Menntamálastofnunar, ef þurfa þykir.
- Halda erindi á ráðstefnum, skrifa greinar í blöð og funda með ráðamönnum.
Handbók ungmennaráðs Menntamálastofnunar
Fréttatilkynning um stofnun ungmennaráðs.
Uppplýsingar frá samráðsfundi Menntamálastofnunar og fulltrúa úr ungmennaráðum 29. apríl 2016.
Umsjónaraðili ungmennaráðsins er Anna Björg Auðunsdóttir, [email protected].